Sony Xperia Z2 - Stillingar fyrir internet og MMS

background image

Stillingar fyrir internet og MMS

Til að senda margmiðlunarskilaboð eða komast á netið þegar ekkert Wi-Fi net er til staðar

þarftu að vera með virka farsímatengingu með réttum internet- og MMS-stillingum. Hér

eru nokkrar ábendingar:

Í flestum farsímakerfum og hjá flestum símafyrirtækjum eru internet- og MMS-stillingar

forstilltar í tækinu. Þú getur þá byrjað að nota internetið og senda margmiðlunarskilaboð

undir eins.

Það er hægt að sækja þessar stillingar í gegnum Wi-Fi.

Þú getur hvenær sem er bætt við og breytt eða eytt internet- og MMS-stillingum í tækinu.

Ef þú breytir eða eyðir internet- eða MMS-stillingu óvart skaltu sækja stillingarnar aftur.

Ef þú kemst ekki á netið í gegnum farsímakerfi eða ef margmiðlunarskilaboð virka ekki

þótt internet- og MMS-stillingar hafi verið sóttar skaltu skoða ábendingar um úrræðaleit

fyrir tækið þitt á

www.sonymobile.com/support/

vegna vandamála með þjónustusvæði,

gagnatengingu og MMS.

Ef rafhlöðusparnaðarstilling er virk til að spara orku fer öll gagnaumferð í bið þegar

skjárinn slekkur á sér. Ef þetta veldur vandræðum með tengingu geturðu prófað að

undanskilja einhver forrit eða þjónustur frá stöðvun á gagnaumferð eða slökkva

tímabundið á rafhlöðusparnaðarstillingu.

Ef þú notar tæki með fleiri en einum notanda getur aðeins eigandinn, þ.e. aðalnotandinn,

sótt internet- og skilaboðastillingar úr stillingavalmyndinni, en sóttar stillingar ná til allra

notenda.

Til að sækja Internet og MMS stillingar

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Meira > Niðurhal stillinga.

3

Pikkaðu á

Samþykkja. Þegar búið er að sækja stillingarnar, birtist á

stöðustikunni og kveikt er sjálfkrafa á gagnatengingu.

Ef ekki er hægt að sækja stillingar í tækið ferðu á sendistyrk á farsímakerfinu þínu. Farðu á

opna staðsetningu þar sem engin hindrun er eða nær glugga og reyndu síðan aftur.

Til að bæta internet- og MMS-stillingum handvirkt inn

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Meira > Farsímakerfi.

3

Pikkaðu á

Heiti aðgangsstaða > .

4

Pikkaðu á

Nafn og sláðu viðeigandi heiti inn.

5

Pikkaðu á

APN: og sláðu inn heiti aðgangsstaðarins.

6

Sláðu allar aðrar upplýsingar inn eins og þarf. Hafðu samband við símafyrirtækið

þitt fyrir frekari upplýsingar ef þú veist ekki hvaða upplýsingar þarf.

7

Þegar því er lokið pikkarðu á og síðan á

VISTA.

45

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Sóttar internets- og MMS-stillingar skoðaðar

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Meira > Farsímakerfi.

3

Pikkaðu á

Heiti aðgangsstaða.

4

Pikkaðu á hvaða hluti sem eru til staðar til að skoða fleiri atriði.

Ef nokkrar tengingar eru tiltækar er virka nettengingin gefin til kynna með merktum hnappi .