Sony Xperia Z2 - Efni deilt með DLNA Certified™‎ tækjum

background image

Efni deilt með DLNA Certified™ tækjum

Þú getur skoðað eða spilað efni sem er vistað í tækinu þínu í öðrum tækjum, eins og til

dæmis í sjónvarpi eða tölvu. Þessi tæki verða að vera á sama þráðlausa neti og geta

verið Sony-sjónvörp eða -hátalarar, eða vörur sem eru DLNA Certified™ af Digital Living

Network Alliance. Þú getur líka skoðað eða spilað efni frá öðrum DLNA Certified™

tækjum í tækinu þínu.
Eftir að þú setur upp deilingu efnis milli tækja, getur þú til dæmis hlustað á tónlistarskrár

sem eru vistaðar í tölvunni heima úr tækinu þínu eða skoðað myndir sem eru teknar með

myndavél tækisins á stórum sjónvarpsskjá.

Spilaðu skrár frá DLNA Certified™ tækjum á tækinu þínu

Þegar þú spilar skrár úr öðru DLNA Certified™ tæki á tækinu þínu hefur hitt tækið

hlutverk sem miðlari. Með öðrum orðum, samnýtir hann efni í gegnum símkerfi.

Miðlaratækið verður að hafa kveikt á efnideilingar valkostinum og gefa heimildaraðgang

að tækinu þínu. Það verður einnig að vera tengt við sama Wi-Fi símakerfi og tækið þitt.

Samnýtt lag spilað á tækinu

1

Gakktu úr skugga um að tækin sem þú vilt deila skrám með séu tengd við sama

Wi-Fi netkerfi og tækið.

2

Á Heimaskjár pikkarðu á , finnur síðan og pkkar á .

3

Dragðu vinstri brún heimavalmyndar tónlistar til hægri og pikkaðu á

Heimakerfi.

4

Veldu tæki úr lista af tengdum tækjum.

5

Flettu möppur frá tengdum tækjum og veldu lagið sem þú vilt spila. Lagið fer

sjálfkrafa af stað þegar búið er að velja það.

Samnýtt myndskeið spilað á tækinu

1

Gakktu úr skugga um að tækin sem þú vilt deila skrám með séu tengd við sama

Wi-Fi netkerfi og tækið.

2

Á Heimaskjár skaltu pikka á og finna og pikka á

Myndskeið.

3

Dragðu vinstri brún heimavalmyndar Myndskeiða til hægri og pikkaðu á

Heimakerfi.

4

Veldu tæki úr lista af tengdum tækjum.

5

Flettu möppum frá tengdum tækjum og veldu myndskeiðið sem þú vilt spila.

120

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Mynd sem hefur verið deilt skoðuð í tækinu

1

Gakktu úr skugga um að tækin sem þú vilt deila skrám með séu tengd við sama

Wi-Fi netkerfi og tækið.

2

Á Heimaskjár, pikkarðu á , finnur síðan og pikkar á

Albúm.

3

Dragðu vinstri brún albúmsheimaskjásins til hægri og pikkaðu á

Heimakerfi

4

Veldu tæki úr lista af tengdum tækjum.

5

Flettu í möppum tækisins sem þú tengist og veldu mynd til að skoða.

Spilaðu skrár frá tækinu þínu á DLNA Certified™ tækjum

Áður en þú getur skoðað eða spilað efnisskrár frá tækinu þínu á öðrum DLNA Certified™

tækjum verður þú fyrst að setja deilingu skráa upp á tækinu. Tækin sem þú samnýtir efni

með eru kölluð biðlaratæki. Til dæmis getur sjónvarp, tölva eða spjaldtölva verið

biðlaratæki. Tækið þitt vinnur sem efnisþjónn þegar hann gerir efni tiltæk

biðlaratækjunum. Þegar þú setur upp skráadeilingu á tækinu verður þú líka að heimila

aðgang að biðlaratækjunum. Eftir að þú hefur gert það birtast þess konar tæki sem skráð

tæki. Tæki sem bíða eftir að fá heimild að aðgangi eru skráð sem tæki í bið.

Skráadeiling með öðrum DLNA Certified™ tækjum sett upp

1

Tengdu tækið við Wi-Fi net.

2

Á Heimaskjár pikkarðu á , finndu síðan og pikkaðu á

Stillingar > Tengingar

tækis > Efnisþjónn.

3

Til að kveikja á

Deila efni aðgerðinni dregurðu sleðann. birtist á stöðustikunni.

Tækið virkar nú sem efnisþjónn.

4

Tengdu tölvuna eða önnur tæki við sama Wi-Fi net og tækið.

5

Tilkynning birtist í stöðustiku tækisins. Opnaðu tilkynninguna og stilltu

aðgangsheimildir fyrir hvert tæki.

Leiðbeiningarnar fyrir uppstillingu skráadeilingar með DLNA™ eru mismunandi eftir

biðlaratækinu. Skoðaðu notandahandbók biðlaratækisins til að fá frekari upplýsingar. Ef tækið

getur ekki tengst við biðlara á netinu, athugaðu hvort Wi-Fi netið virki.

Þú getur einnig opnað

Efnisþjónn valmyndina frá sérstökum forritum eins og tónlist, albúmi

eða myndskeiði með því að draga vinstri brún af heimaskjá forritsins til hægri og pikka síðan á

Stillingar > Efnisþjónn.

Skráadeilingu með öðrum DLNA Certified™ tækjum hætt

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Tengingar tækis > Efnisþjónn.

3

Dragðu sleðann við hliðina á

Deila efni til vinstri.

Aðgangsheimildir stilltar fyrir tæki sem er í bið

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Tengingar tækis > Efnisþjónn.

3

Veldu tæki af

Tæki í bið listanum.

4

Veldu aðgangsheimildarstig.

Heiti á skráðu tæki breytt

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Tengingar tækis > Efnisþjónn.

3

Veldu tæki úr

Skráð tæki listanum og veldu svo Breyta nafni.

4

Sláðu nýtt inn nýtt heiti á tækinu og pikkaðu á

Í lagi.

Til að breyta aðgangsstigi á skráðu tæki

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Tengingar tækis > Efnisþjónn.

3

Veldu tæki af

Skráð tæki listanum.

4

Pikkaðu á

Breyta aðgangsstigi og veldu valkost.

121

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Að fá hjálp við að deila efni með öðrum DLNA Certified™ tækjum

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar >Tengingar tækis > Efnisþjónn.

3

Pikkaðu á og síðan

Hjálp.

Spila skrár á stafrænu miðlarabirti tæki

Með því að nota DLNA™ tækni getur þú ýtt miðlaraefni sem eru vistuð í tækinu yfir í

önnur tæki sem eru tengd við sama Wi-Fi símakerfi. Hitt tækið verður að geta virkað sem

stafrænn miðlarabirti (DRM) tæki og getur birt eða spilað efni fengin úr tækinu þínu.

Sjónvarp með DLNA eiginleikum eða tölva sem keyrir Windows® 7 eða hærri eru dæmi

um DMR tæki.

Stillingar til að leyfa stafrænn miðlarabirti getur verið mismunandi eftir tæki. Frekari upplýsingar

má nálgast í leiðarvísi viðkomandi DMR tæki.

Það er ekki hægt að spila efni með stafrænum réttindum (DRM) á stafrænum miðlarabirti með

DLNA™ tækni.

Myndir eða myndskeið úr símanum skoðuð á DMR-tæki

1

Gakktu úr skugga um að þú hafir sett DMR-tækið rétt upp og að það sé tengt við

sama Wi-Fi netkerfi og tækið þitt.

2

Á Heimaskjár pikkarðu á .

3

Finndu og pikkaðu á

Albúm.

4

Flettu og opnaðu myndir eða myndskeið sem þú vilt skoða.

5

Pikkaðu á skjáinn til að fá upp tækjastikuna og pikkaðu svo á , svo á

Throw, og

veldu DMR-tæki sem þú vilt deila efninu þínu með. Valið efni byrjar að spilast í

tímaröð á tækinu sem þú velur.

6

Til að aftengjast DMR tækinu pikkarðu á og velur

Aftengja. Skráin hættir að

spilast á DMR-tækinu en heldur áfram að spilast á tækinu þínu.

Þú getur líka deilt myndskeiði úr myndskeiðaforritinu í tækinu þínu með því að pikka á

myndskeiðið og pikka síðan á og svo

Throw.

Lag úr tækinu þínu spilað á DMR-tæki

1

Gakktu úr skugga um að þú hafir sett DMR-tækið rétt upp og að það sé tengt við

sama Wi-Fi netkerfi og tækið þitt.

2

Á Heimaskjár skaltu pikka á og finna og pikka á .

3

Veldu tónlistarflokk og flettu að laginu sem þú vilt deila og pikkaðu svo á lagið.

4

Pikkaðu á og svo á

Throw og veldu DMR-tæki til að deila efninu með. Lagið

spilast sjálfkrafa á tækinu sem þú velur.

5

Til að aftengjast DMR-tækinu skaltu pikka á og velja tækið þitt. Lagið hættir að

spilast á DMR-tækinu en heldur áfram að spilast á tækinu þínu.